Lyt til uddrag
Lyt

Sögur herlæknisins 2: Sverðið og plógurinn

Annað bindi hinna ævintýralegu fjölskyldu- og örlagasögu er spannar sögu Finna og Svía yfir tvær aldir. Meginþemað er hringur einn sem býr yfir töframætti, sem minnir um margt á annað frægt verk er kom út hátt í hundrað árum seinna.

Sagan er sögð af herlækni einum í þessum stóra sögulega sagnabálki, stílbragð sem gengur fullkomlega upp í höndum hins sænskumælandi Finna, Zacharias Topelius, og býður frásögninni upp á ákveðið frelsi.
Sagan birtist fyrst í dagblaðsútgáfu árið 1851 en íslensk þýðing er í höndum sjálfs Matthíasar Jochumssonar. Rithöfundurinn, ljóðskáldið og blaðamaðurinn Zacharias Topelius (1818-1898) var nokkuð víðförull á sínum ferli; var doktor í sagnfræði, áhrifamaður í frelsisbaráttu Finna gegn Rússum og gegndi meðal annars stöðu rektors við Háskólann í Helsinki. Verk hans báru með sér mikinn keim af fornum leyndardóm, dulspeki og jafnvel alkemískum fræðum. En styttri verk hans könnuðu þau miklu áhrif sem iðnbyltinginn hafði á finnskt samfélag.
51,58  DKK
Lydbog
 
Udgave
Trykt sideantal
Udgivelsesdato11 nov. 2021
Udgivet afSAGA Egmont
Sprogice
ISBN lydbog9788728135426