Læs uddrag
Læs
Lyt til uddrag
Lyt

Tónsnillingaþættir: Hartmann

Johan Peter Emilius Hartmann var danskt tónskáld. Hann fæddist árið 1805 í Kaupmannahöfn. Forfeður hans voru einnig tónskáld, langt aftur í ættir en faðir hans hvatti hann frá óstöðugleika tónlistarinnar. Þess vegna lærði hann lögfræði og starfaði fyrir ríkið lengi vel. Hann sleppti þó aldrei alveg taki á tónlistinni og er í dag talinn fremsta tónskáld Danmerkur frá 19. öld. Hann vann að nokkrum verkefnum með vini sínum, hinum heimsþekkta H.C. Andersen. Serían fjallar um helstu tónsnillinga allt frá árunum 1525-1907. Hún er byggð á skrifum Theodórs Árnasonar sem var íslenskur tónlistarmaður. Fjallað er um líf tónskálda og verk þeirra. Bókin kom fyrst út árið 1966. Theodór Árnason fæddist 10. desember 1889. Hann ólst upp á Seyðisfirði þar sem hann lærði á á fiðlu sem barn. Hann starfaði sem hljómsveitarstjóri í kvikmyndahúsi í Winnipeg og lærði hljómlist í Kaupmannahöfn. Hann er íslendingum þó þekktastur sem rithöfundur og þýðandi. Hann þýddi m.a. nokkur Grímsævintýri auk þess sem hann skrifaði um helstu tónsnillinga heimsins.
11,98  DKK
Køb Epub (e-bog)
Inkl. online adgang
Udgave
Trykt sideantal6 Sider
Udgivelsesdato01 jan. 2022
Udgivet afSAGA Egmont
Sprogice
ISBN epub9788728037317
ISBN lydbog9788728037843