Læs uddrag
Læs
Lyt til uddrag
Lyt

Klukkan

Á degi hverjum glymur í eyrum stórborgarbúanna undurfagur hljómur dularfullrar klukku. Enginn veit hvar klukkan er sem hringir svona fagurlega. Fólkið leggur af stað út í skóginn í leit að uppsprettu hljóðsins, en truflast á leiðinni og alltaf slær klukkan utan seilingar. Keisarinn lætur þau boð út ganga, að hver sá sem geti uppgötvað, hvaðan hljóðið komi verði skipaður „heimshringjari". Ýmsir sækjast eftir þeirri nafnbót, en falsspámenn eru víða.

Það er ekki fyrr en tveir ungir fermingardrengir fara á stúfana, fullir af æskufjöri og fróðleiksþorsta, að nýjar vísbendingar koma fram í hinu dularfulla klukkumáli. Þó leiðir þeirra liggi ekki saman er áfangastaðurinn einn og hinn sami, en útlit klukkunnar er heldur óvænt.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson. H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. „Klukkan" sameinar mörg af hans helstu skáldskapareinkennum. Þar birtist samspil manns og hinnar upphöfnu náttúru sem mannskepnan skilur varla lengur. Trúarlegur undirtónn, sem er áberandi víða í ævintýrum Andersens, skapar fyllingu í heildarmyndina. Úr verður undurfagurt samspil fegurðar náttúrunnar og barnslegs hreinleika manneskjunnar. rn
13,18  DKK
Køb Epub (e-bog)
Inkl. online adgang
Udgave
Trykt sideantal7 Sider
Udgivelsesdato11 feb. 2020
Udgivet afSAGA Egmont
Sprogice
ISBN epub9788726237801
ISBN lydbog9788726238198