Læs uddrag
Læs
Lyt til uddrag
Lyt

Hænsna-Þóris saga

Hænsna-Þóris saga fjallar um átök á milli bænda. Hænsna-Þórir þótti heldur ógeðfelldur maður. Hann var upphaflega fátækur en reis upp úr fátæktinni og gerðist bóndi. Þóri var gjarnan uppsigað við nágranna sína sem hann hafði jafnan grunaða um að líta niður á sig. Þegar heyskortur varð þurftu grannarnir þó að leita til Þóris sem neitaði þá að selja þeim hey. Vegna þessa urðu svo átök í kjölfarið.

Verkið er heldur frábrugðið helstu Íslendingasögum en hefur það verið nefnt að sagan sé viðbrögð við lögum Magnúsar lagabætis Noregskonungs. Lög þau kváðu á um að þeir bændur sem veitt gætu hey í heyskorti væru skyldugir að gera svo. Taldist það því ekki glæpur eða refsivert að herja á bónda sem neitaði í slíkum aðstæðum.
Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
34,78  DKK
Køb Epub (e-bog)
Inkl. online adgang
Udgave
Trykt sideantal30 Sider
Udgivelsesdato25 sep. 2020
Udgivet afSAGA Egmont
Sprogice
ISBN epub9788726225631
ISBN lydbog9788726516425