Læs uddrag
Læs

Flóamanna saga

Flóamanna saga er talin rituð um 1300 en hún hefur varðveist í tveimur útgáfum sem eru heldur frábrugðnar hvor frá annarri. Sögusviðið hennar er Gaulverjabær á Suðurlandi en einnig teygir hún sig til Noregs, Bretlands og Grænlands.

Verkið fjallar um Þorgils Örrabeinsstjúp, nokkuð dæmigerða íslenska hetju sem tekur upp kristni og uppsker í kjölfarið reiði þrumuguðsins Þórs. Auk hans koma við sögu þekktar persónur eins og Ingólfur Arnarson, fóstbróður hans Leifur, Eiríkur rauði og Ásgrímur Elliða-Grímsson. Verkið er vel uppbyggt og þykir frásögnin frá dvölinni á Grænlandi áhrifamikil og nokkuð raunsönn.
Íslendingasögurnar eru einstakar að því leyti að höfunda þeirra er hvergi getið. Sögurnar hafa að öllum líkindum varðveist í munnlegri geymd og síðar rituðum heimildum en frumtexta sagnanna er hvergi að finna. Sögurnar eru afar mikilvæg heimild um líf Íslendinga á miðöldum og eru bækurnar óneitanlega stór hluti af íslenskum menningararfi. Þær eru um fjörutíu talsins og fjalla að mestu um líf bænda og víkinga á miðöldum þar sem hefndin réði ríkjum.
34,78  DKK
Køb Epub (e-bog)
Inkl. online adgang
Udgave
Trykt sideantal30 Sider
Udgivelsesdato31 jul. 2020
Udgivet afSAGA Egmont
Sprogice
ISBN epub9788726225594