Lyt til uddrag
Lyt

Fegursta rós heimsins

Voldug drottning með græna fingur liggur fyrir dauðanum. Á ævi sinni hefur hún ræktað upp heimsins fegursta blómagarð með öllum afbrigðum af blómum. Nú er ekkert sem gæti forðað henni frá dauðanum nema það að henni verði færð fegursta rós heimsins.

Mörg verða til að leita hennar og færa henni hin fegurstu blóm. Skáldin yrkja um rósina og fljótlega verður fólki ljóst, að ekki er endilega verið að sækjast eftir blómi í bókstaflegri merkingu. Leitar það þá í hjörtum sér og finnur þar kærleika og trú. En fegursta rós heimsins er ekki endilega manneskja á meðal vor.

Þýðandi er Steingrímur Thorsteinsson. H.C. Andersen (1805-1875) er eitt þekktasta skáld Danmerkur. Eftir hann liggja á fjórða þúsund ævintýra sem þýdd hafa verið á meira en 125 tungumál. „Fegursta rós heimsins" blandar saman tveimur fyrirbærum sem voru honum afar kær, náttúru og trú. Andersen tekst hér að mála á hrífandi máta upp fegurstu dyggðir mannkynsins, án þess að gleyma hinni æðstu fórn, sem hvert guðsbarn ætti að hafa í huga.
10,78  DKK
Lydbog
 
Udgave
Trykt sideantal
Udgivelsesdato03 jun. 2020
Udgivet afSAGA Egmont
Sprogice
ISBN lydbog9788726238358