Lyt til uddrag
Lyt

Þjófurinn sem skildi eftir sæði sitt á vettvangi

Frá júní 2002 til maí 2003 var brotist inn í mörg stór einbýlishús í Gautaborg og öðrum borgum og bæjum í vestanverðri Svíþjóð. Eitt var það sem var með sama hætti í öllum innbrotunum og lögreglan dró af því þá ályktun að innbrotin væru öll framin af einum og sama manninum – þrátt fyrir að fjöldi innbrotanna benti til annars. Auk þess voru innbrotin framin af ótrúlega miklu áræði – í mörgum tilvikum voru húseigendurnir heima við þegar brotist var inn. Rannsóknin leiddi lögregluna að lokum á slóð 21 árs hælisleitanda sem hafði setið í fangelsi í heimalandi sínu þegar hann var unglingur og hafði mátt þola pyntingar. Var það ástæðan fyrir undarlegu verklagi hans?  Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ástæðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
22,78  DKK
Lydbog
 
Udgave
Trykt sideantal
Udgivelsesdato29 mar. 2022
Udgivet afSAGA Egmont
Sprogice
ISBN lydbog9788726522129