Lyt til uddrag
Lyt

Tónsnillingaþættir: Bellini

Vincenzo Salvatore Carmelo Francesco Bellini fæddist árið 1801 á Sikiley. Hann var frumkvöðull í heimi tónlistar og þekktur fyrir langar og flæðandi laglínur. Hann nam tónlist fyrst hjá föður sínum og síðar í tónlistaskóla Napoli (Neapel). Bellini bar af í námi sínu og var kostaður þangað af óþekktum aðalsmanni. Söngverk hans vöktu mikla athygli og eru enn í hávegum höfð í dag. Serían fjallar um helstu tónsnillinga allt frá árunum 1525-1907. Hún er byggð á skrifum Theodórs Árnasonar sem var íslenskur tónlistarmaður. Fjallað er um líf tónskálda og verk þeirra. Bókin kom fyrst út árið 1966. Theodór Árnason fæddist 10. desember 1889. Hann ólst upp á Seyðisfirði þar sem hann lærði á á fiðlu sem barn. Hann starfaði sem hljómsveitarstjóri í kvikmyndahúsi í Winnipeg og lærði hljómlist í Kaupmannahöfn. Hann er íslendingum þó þekktastur sem rithöfundur og þýðandi. Hann þýddi m.a. nokkur Grímsævintýri auk þess sem hann skrifaði um helstu tónsnillinga heimsins.
11,98  DKK
Køb Epub (e-bog)
Inkl. online adgang
Udgave
Trykt sideantal5 Sider
Udgivelsesdato01 jan. 2022
Udgivet afSAGA Egmont
Sprogice
ISBN epub9788728037331
ISBN lydbog9788728037829