Lyt til uddrag
Lyt

„Grímuræningjarnir" voru svellkaldir

Í eftirlitsmyndavélinni sáu rannsóknarlögreglumennirnir mennina þrjá koma út úr húsinu. „Sá langi" settist undir stýri, „sá feiti" í farþegasætið við hlið hans og „sá ungi" í aftursætið. Bíllinn var settur í gang og síðan óku þeir út á eina veginn sem þarna var, í átt að hlöðunni og lögreglumönnunum. Þegar bíllinn var kominn milli hlöðunnar og íbúðarhússins var látið til skarar skríða. Strákarnir í lögreglubílnum voru tilbúnir, rannsóknarlögreglumennirnir voru tilbúnir. Margra daga bið var fljótlega lokið.
En byrjum á byrjuninni. Í bókunum „Norræn sakamál" segja íslenskir lögreglumenn frá merkilegum málum sem þeir hafa unnið að, gera grein fyrir atburðarrás glæpanna, rannsókn þeirra og gefa raunsanna lýsingu á glæpamönnunum og ást- æðunum sem liggja að baki voðaverka, bæði með sögum frá hinum Norðurlöndunum og raunsönnun íslenskum sakamálum.
51,58  DKK
Lydbog
 
Udgave
Trykt sideantal
Udgivelsesdato25 mar. 2021
Udgivet afSAGA Egmont
Sprogice
ISBN lydbog9788726512618