Læs uddrag
Læs
Lyt til uddrag
Lyt

Sjötta ferð Sindbaðs farmanns (Þúsund og ein nótt 42)

Sindbað heldur af stað í sína sjöttu ferð sem engan furðar að inniheldur skipreka, hættur og hungur. Hann endaði einn á eyju og þrátt fyrir að dauði hans virtist fyrirsjáanlegur tókst honum að koma sér út. Hann byggði fleka og sigldi niður ókunnuga á sem flæddi í gegnum helli. Hellirinn var hinsvegar ekki hinn einfaldasti. Hann var fullur af gersemum og gimsteinum sem Sindbað glaður greip. En hvert mun áin taka hann og hvernig geta gersemarnar gert honum gott?

Þetta er 42. sagan í röðinni af 46 ævintýrum í hinu klassíska safni "Þúsund og ein nótt". Eftir að Sjarjar konungur er svikinn af konu sinni getur hann ekki treyst öðrum konum. Hann tekur sífellt við nýjar konur og afhausar þær svo. Þegar hann kynnist Sjerasade eru það töfrandi sagnamáttur hennar sem nær að halda henni á lífi, en sögur hennar heilla konung á þann hátt að hann fær sig ekki til þess að drepa hana. Ævintýralegu sögurnar sem innihalda forn heilræði hafa einnig þann mátt að geta breytt ákvörðunum og örlögum konungsins. Hin einstaka list þess að segja sögur birtist í samansafni ævintýra "Þúsund og einnar nætur" sem hafa í margar aldir heillað ímyndunarafl kynslóða um allan heim. Það mætti jafnvel nefna sögurnar á meðal mikilfenglegustu framlaga Arabískra, Mið-Austurlenskra og íslamskra rita til heimsbókmennta. Heill hellingur af bókmenntum, tónlist, list og kvikmyndum hafa orðið til vegna innblásturs frá sögunum, sem halda áfram að hafa gríðarleg áhrif enn þann dag í dag. Sögurnar eru töfrum líkastar og uppfullar af ævintýrum og finna má margvíslegar uppfærslur af þeim í formi Aladdín, Alí Baba og Sindbað sæfara. Þú munt ekki sjá eftir því að gleyma þér um stund í ævintýrunum sem standa yfir í þúsund og eina nótt.
11,98  DKK
Køb Epub (e-bog)
Inkl. online adgang
Udgave
Trykt sideantal6 Sider
Udgivelsesdato06 sep. 2021
Udgivet afSAGA Egmont
Sprogice
ISBN epub9788726593099
ISBN lydbog9788726889116