Lyt til uddrag
Lyt

Páfagaukur konungur (Þúsund og ein nótt 23)

Konungur á Indlandi gat fyrir kraft töfraþulu frá munki einum farið úr líkama sínum og brugðist í líki dýra. Hann gerir þau mistök að sýna einum af vezírum sínum kunnáttuna sem svíkur hann með brögðum. Með sögunni vildi Kansade sýna fram á það að vezírum sé ekki treystandi.

Þetta er 23. sagan í röðinni af 46 ævintýrum í hinu klassíska safni "Þúsund og ein nótt". Eftir að Sjarjar konungur er svikinn af konu sinni getur hann ekki treyst öðrum konum. Hann tekur sífellt við nýjar konur og afhausar þær svo. Þegar hann kynnist Sjerasade eru það töfrandi sagnamáttur hennar sem nær að halda henni á lífi, en sögur hennar heilla konung á þann hátt að hann fær sig ekki til þess að drepa hana. Ævintýralegu sögurnar sem innihalda forn heilræði hafa einnig þann mátt að geta breytt ákvörðunum og örlögum konungsins. Hin einstaka list þess að segja sögur birtist í samansafni ævintýra "Þúsund og einnar nætur" sem hafa í margar aldir heillað ímyndunarafl kynslóða um allan heim. Það mætti jafnvel nefna sögurnar á meðal mikilfenglegustu framlaga Arabískra, Mið-Austurlenskra og íslamskra rita til heimsbókmennta. Heill hellingur af bókmenntum, tónlist, list og kvikmyndum hafa orðið til vegna innblásturs frá sögunum, sem halda áfram að hafa gríðarleg áhrif enn þann dag í dag. Sögurnar eru töfrum líkastar og uppfullar af ævintýrum og finna má margvíslegar uppfærslur af þeim í formi Aladdín, Alí Baba og Sindbað sæfara. Þú munt ekki sjá eftir því að gleyma þér um stund í ævintýrunum sem standa yfir í þúsund og eina nótt.
11,98  DKK
Køb Epub (e-bog)
Inkl. online adgang
Udgave
Trykt sideantal2 Sider
Udgivelsesdato06 sep. 2021
Udgivet afSAGA Egmont
Sprogice
ISBN epub9788726592788
ISBN lydbog9788726889307